Fyrsta æfingin verður 6. september kl. 17. Breytt fyrirkomulag verður á starfinu í vetur. Æfingar verða tvisvar í vetur, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17. Ekki verður alltaf æft á þriðjudögum, heldur fáið þið fyrirlesara, námskeið, tónfræðikennslu o.fl. Dæmi um námskeið eru hárgreiðslunámskeið og tjáningarnámskeið. Einnig verður almennt spjall, frjálsir tímar, grill o.fl. Æfingadagar verða auðvitað með tilheyrandi gistingum í kirkju og/eða öðrum stöðum. Ég ætla að taka c.a. 15 nýjar stelpur inn í kórinn í haust. Ef þið vitið um einhverjar sem hafa áhuga megið þið eða þær hafa samband við mig strax. Ég er þegar búinn að taka tvær inn, verið velkomnar í kórinn Lilja Sif og Fjóla Kristín.
Hlakka hrikalega mikið til að hitta ykkur. Þá segi ég ykkur betur frá vetrinum, fyrirhugaðri ferð í vor o.fl.
ykkar,
Eyþór